157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

hækkun stýrivaxta.

[15:29]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Það er kannski ekki skrýtið að stjórnarandstaðan komi hér upp í fundarstjórn forseta þar sem það hefur skort traust og skorti traust á síðasta þingi á milli forseta og stjórnarandstöðunnar. En það sem er sérstakt í umræðunni hér, frú forseti, er að það er verið að tala um hegðun þingmanna í salnum. Hér kemur þingflokksformaður Viðreisnar og ásakar 20 þingmenn sem sitja hér á einhverjum væng í salnum, það er mjög sérstakt, en lætur svo eins og hann sé skinheilagur. Sá eini sem hefur gripið fram í ræðum hjá mér er akkúrat hv. þingmaður sem var hér eins og engill í pontu áðan. (Gripið fram í.) Og gerir akkúrat núna aftur, sem er þá bara til að staðfesta það og það er bara fyndið, ég þakka honum fyrir þetta. En það sem ég vil benda frú forseta á er að hér á ráðherrabekknum, þegar menn eru að flytja ræður, er endalaust verið að flissa, rápa, fara fram og til baka (Forseti hringir.) og ég legg til að forseti athugi hegðun einstaklinga á ráðherrabekk.