hækkun stýrivaxta.
Virðulegur forseti. Það eru algjörlega afleit tíðindi að Seðlabanki Íslands hafi fundið sig knúinn til að hækka stýrivexti í morgun. Þetta er mjög alvarlegt bakslag í þá þróun sem hefur átt sér stað og átti sér stað síðustu mánuði og síðastliðið ár. Getur ríkisstjórnin gert meira til að halda verðbólguvæntingum í skefjum og þar með vaxtastiginu? Já, svo sannarlega. En ætlum við að hverfa aftur til þeirrar efnahagsstjórnar og þeirrar stefnu sem færði okkur 9,25% stýrivexti og 10% verðbólgu? Nei, það kemur ekki til greina. Það kemur ekki til greina. Eigum við að dusta rykið kannski af fjármálaáætlun fyrri ríkisstjórnar sem vildi reka ríkissjóð lengur með halla, sem ætlaði að reka ríkissjóð líka með halla árið 2028? Eigum við að dusta rykið af þeirri fjármálaáætlun og fylgja henni? Væri það gott fyrir verðbólguvæntingar og vaxtastigið í landinu? (Gripið fram í.)Nei, það kemur ekki til greina. Við höldum okkur við planið og rétt eins og fólk getur treyst því að sólin komi upp á morgun þá getur fólk treyst því að aðhaldsstig ríkisins muni herðast. Fólk getur treyst því (Forseti hringir.) að ríkissjóður verði hallalaus árið 2027, (Forseti hringir.) ári fyrr en áður var gert ráð fyrir, (Forseti hringir.) vegna þess að við sýnum ábyrgð og tökum ábyrgð á stöðu efnahagsmála en bendum ekki bara á einhvern annan eins og tíðkaðist hérna og eins og við sjáum svo enn þá.