Störf þingsins.
Frú forseti. Mig langar að ræða það sem við köllum fitulagið í skólum. Grunnskólinn á og getur verið eitt mikilvægasta jöfnunartæki samfélagsins. Skólinn á að tryggja að öll börn hafi jafna stöðu, aðgang og möguleika óháð efnahag foreldra og forráðamanna, bakgrunni eða búsetu. Það er bæði lagaleg og ekki síður siðferðisleg skylda skólanna okkar að sjá um að svo verði. En raunveruleikinn sem blasir við er stundum annar. Í starfi stýrihóps sem mennta- og barnamálaráðherra skipaði, og ég fór fyrir, til að móta stefnu og aðgerðir til að takast á við fátækt barna höfum við rekist á dæmi um verulegan mismun varðandi kostnað sem fellur á fjölskyldur vegna þátttöku barna í skólasamfélaginu, kostnað sem tengist ekki beint kjarna námsins heldur félagslegri þátttöku sem er órjúfanlegur hluti af skólagöngu barna. Í sumum skólum eru skólaferðir að fullu greiddar af skólanum, m.a. vegna tilmæla fræðslustjóra. Í þeim skólum hefur þátttaka aukist og allir nemendur geta verið með. Í öðrum skólum eru dæmi um tugþúsunda króna kostnað foreldra sem greiða tæpar 50.000 kr. fyrir skólabúðir, auk kostnaðar vegna árshátíða, skóladansleikja, bekkjarkvölda og jafnvel kaupa á sérmerktum skólapeysum. Við sjáum líka að börn eru sums staðar hvött til að standa í fjáröflunum með sölu á kökum eða með vinnu við viðburði til að geta tekið þátt í eigin skólagöngu. Þótt slík þátttaka geti verið jákvæð og lærdómsrík má hún aldrei verða forsenda þess að barn fái að taka þátt í félagsstarfi innan skólans. Í sumum sveitarfélögum og skólum er boðið upp á úrræði fyrir einstaka nemendur, t.d. með stuðningi frá mikilvægum sjóðum eins og Hróa hetti. Flestir skólastjórnendur og kennarar eru meðvitaðir um þennan mismun og fara ýmsar leiðir til að tryggja að börn frá tekjulágum heimilum geti tekið þátt í skólasamfélaginu. En það leysir ekki kerfisbundinn vanda. Þetta er ekki smávægilegt atriði. Þátttaka í skólasamfélaginu er lykilþáttur í (Forseti hringir.) félagsfærni, sjálfsmynd og tengslamyndun barna. Í grunnskólanum verða til minningar sem fylgja börnunum alla ævi (Forseti hringir.) og þær minningar geta verið neikvæðar ef reynsla barna er að hafa staðið utanveltu.