Störf þingsins.
Frú forseti. Það er kannski til að æra óstöðugan að ætla að ræða kílómetragjaldið hér einu sinni enn en þannig háttar til að ég gerði það að umtalsefni í byrjun síðustu viku og fór svo í lok vikunnar og heimsótti stórt fyrirtæki með höfuðstöðvar norður í landi en starfsemi um allt land þar sem þetta málefni var sérstaklega tekið fyrir og það setti að mér kaldan hroll er ég fékk staðreyndirnar lagðar fyrir mig á borðið um hvernig staðan er í málinu. Hún er jafnvel enn verri en ég hef verið að reyna að benda á hér. Þetta eina fyrirtæki fékk rukkanir, rangar rukkanir upp á um 7.400 línur sem starfsmenn fyrirtækisins þurfa svo að sjálfsögðu að liggja yfir og leita að villunum. Þeirri vinnu var vart lokið og sennilega ekki lokið þegar reikningurinn fyrir febrúar var mættur upp á 12.000 línur og sá reikningur byggist á áætluninni fyrir janúar sem var röng. Það er ekki hægt, frú forseti, að bjóða fyrirtækjum landsins eða einstaklingum og íbúum upp á þessi vinnubrögð. Við vöruðum ítrekað við þessu. Til að taka steininn úr var viðtal á dögunum við hæstv. fjármálaráðherra á Bylgjunni, einmitt varðandi þetta mál, en þar sagði hæstv. fjármálaráðherra, með leyfi forseta:
„Ef það hefur gerst að fólk hafi fengið ranga reikninga þykir mér það ákaflega leitt og get ekkert annað gert en að biðjast afsökunar á því.“ — Ef það hefur gerst, frú forseti. Þetta er veruleikinn sem núverandi ríkisstjórn býr í.