Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Enn þyngjast miklar byrðar almennings með nýjustu vaxtahækkun Seðlabankans og greiðslur og afborganir frá mánuði til mánaðar vegna óstjórnar í efnahagsmálum. Og hvað segir hæstv. forsætisráðherra? Ja, við ætlum að skoða málið eftir páska. Í millitíðinni bíður maður spenntur eftir því að stjórnarliðar fari að stíga fram og útskýri fyrir okkur að vandamálið sé ekki ríkisstjórnin; að vandinn sé ekki, eins og reyndar allir aðrir eru sammála um, söguleg hækkun ríkisútgjalda sem knýr áfram verðbólguna, áframhaldandi útþensla hins opinbera kerfis eða gjaldahækkanir sem fara beint inn í verðbólgu. Nei, það er ekki vandinn. Ekki heldur sú árlega milljarða hækkun bóta á sjálfstýringu sem er stefnt að því að leiða í lög á næstu dögum sem er líkt við stærstu hagstjórnarmistök síðustu áratuga. Nei, það eru ekki heldur vandinn. Ekki heldur opna velferðarkerfið sem á að opna enn frekar með því að stytta biðtímann eftir fullum aðgangi að sjúkrahúskerfinu fyrir þær þúsundir sem streyma hingað til lands á sama tíma og atvinnuleysi útlendinga rýkur upp. Nei, allt þetta er ekki vandamálið munu þeir segja. Vandamálið er íslenska krónan. Vandamálið er sjálfstæður íslenskur seðlabanki. Vandamálið er jafnvel sjálfstæð íslensk þjóð með fullt forræði yfir eigin peningamálum sem er ekki komin inn í verðandi sambandsríki Evrópusambandsins.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað óheppileg klemma að því verra sem ástandið verður í efnahagsmálum því betri eru horfurnar með stóra markmið þessarar ríkisstjórnar: Að koma Íslandi inn í Evrópusambandið. Hæstv. forsætisráðherra hljómaði reyndar ekki eins og þetta væri stóra markmiðið hér fyrir örfáum mánuðum en það breyttist skyndilega eins og hún segir, með leyfi forseta:
„Það sem gerist ítrekað með Evrópusambandið er þegar það gengur illa, þegar það er komin verðbólga og háir vextir, þá byrjar fólk að vilja ganga inn í Evrópusambandið.“
Fólk, þar var greinilega ekki aðeins vísað til hins almenna kjósanda heldur líka til forsætisráðherrans sjálfs.
Virðulegur forseti. Það er sorgarsaga að þeir sem lofuðu því fyrir kosningar að axla ábyrgð á ástandinu hafi nú ákveðið að varpa henni frá sér.