157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

Störf þingsins.

[15:51]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Knattspyrnuferill minn. Fyrst aðeins af mér og mínum. Ég er ættsmár en á marga félaga víðs vegar um heiminn. Þeir, eins og ég, hafa átt draum um glæstan feril á vellinum og margir hafa reynt en engum tekist, ekki einu sinni Lenna frænda sem þótti virkilega efnilegur. Ég vandaði mig mikið og notaði gervigreindina til að búa til trúverðugan sölubækling um mig þannig að eitthvert lið myndi vilja fá mig. Í honum stóð: Skora mikið af mörkum, glæsilegum auðvitað, gef ótal stoðsendingar, leik auðveldlega á menn og hamra niður sóknir andstæðinganna, oft kallaður sleggjan. Auðvitað komst ég að hjá liði sem er í eigu yndislegrar fjölskyldu sem hafði trú á mér enda söluræðan góð. Þegar um einn þriðji af tímabilinu er búinn þá eru einu mörkin sem ég hef skorað sjálfsmörk. Ég skoraði meira að segja eitt í gær af 25 metrum, svokallað 25 punkta mark eins og einhver Ásgeir kallaði það. Segið svo að ég sé ekki góður í einhverju. Ég hef reyndar fengið sjö rauð spjöld líka. Liðið hefur gert eitt jafntefli en tapað öllum öðrum og er langneðst í deildinni og það blasir ekkert annað við en fall. En ég er með plan þó að enginn átti sig á því. Minn tími mun koma.

Ps., frú forseti, ég var að kokka upp plan B. Ég hringdi auðvitað í Gertrud, frænku í Brussel, þótt hún sé alltaf draugþunn og gjaldþrota. Hún reddar þessu. [Hlátur í þingsal.]