Störf þingsins.
Frú forseti. Ég vil nýta tíma minn hér til að vekja athygli þingheims og almennings á þeim tillögum til úrbóta sem birtust í vikunni og er þar verið að ræða um leiðir til að aðstoða börn með vímuefnavanda. Þarna eru til að mynda tillögur um að skýra lagalegan grundvöll heilbrigðisþjónustu í vistunarúrræðum barnaverndaryfirvalda. Þarna er talað um framtíðarskipulag meðferðarúrræða, að efla eftirlit með úrræðunum og tryggja að börn með vímuefnavanda hafi aðgang að sérhæfðri meðferð þegar þörf krefur, þar með talið í útlöndum og ég fagna sérstaklega þessu síðasta atriði. Þetta er risastór vandi og honum verður aldrei útrýmt. En allt þetta er þó til marks um vilja ríkisstjórnarinnar til að gera betur. Þetta er ein stærsta heilbrigðisáskorun samtímans. Fíkn snertir líf, fjölskyldur og framtíð fólks um allt land og spyr hvorki um stétt né stöðu. Það er búið að forgangsraða fjármagni í þennan málaflokk frá fyrsta degi. Til að mynda má nefna nýja samninga við Krýsuvík og Hlaðgerðarkot sem fela í sér umtalsverða fjármuni og leggja áherslu á að samtökin fái staðfestingu til reksturs heilbrigðisþjónustu, sem er auðvitað lykilatriði fyrir faglega starfsemi.
En stærstu tíðindin eru kannski nýr heildarsamningur Sjúkratrygginga Íslands við SÁÁ. Þar er verið að semja til fjögurra ára og fjárveitingin nemur rúmum 4 milljörðum kr. á ári. Það eru veruleg áhrif af þessum samningi. Þarna verður aukið svigrúm fyrir SÁÁ til að forgangsraða meðferð út frá þörf hverju sinni. Þarna er talað um nýja dagdeildarmeðferð sem er innleidd, fíknimóttaka efld og fleira í þeirra starfsemi. Í þessum samningi er fíknisjúkdómurinn viðurkenndur sem alvarlegur og langvinnur vandi sem krefst samfelldrar og faglegrar meðferðar á forsendum einstaklingsins. Nú á fólk kost á að nýta sér fráhvarfsmeðferð á dagdeild þegar innlögn er ekki heppileg. Þetta er stórt og raunhæft skref fram á við og er byggt á því hvernig best er að mæta fólki í vanda á þeirra eigin forsendum. Svo eru auðvitað ekki allir á þeim stað að geta farið í meðferð og þá þurfum við að draga úr skaða eins og kostur er og það er því gleðilegt að það er líka búið að tryggja talsvert mikið fjármagn til starfsemi Frú Ragnheiðar. (Forseti hringir.) Sú leið verður þá nýtt til að gera enn betur. Allt þetta er fagnaðarefni og ég vona að þingheimur sé sammála mér um það að þarna getum við stigið risastór velferðarskref fram á við.