áhrif loftgæða í Reykjavík á útivist leikskólabarna.
Virðulegur forseti. Þessi fyrirspurn mín varð til nýlega þar sem mengunarmökkur hafði legið yfir höfuðborgarsvæðinu dögum saman. Íbúi í Reykjavík gekk svo langt að lýsa ástandinu þannig að hann væri, með leyfi forseta, „hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ og kallaði eftir viðbrögðum frá þingmönnum.
Ég bý sjálf í Reykjavík og er ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu en ég fann samt fyrir ógeðinu á göngu með hundinn minn. Hann er reyndar hvítur voffi og maður sá alveg vel í feldi hans hvernig ástandið var í Reykjavík á þessum tíma. Ég sendi því fyrirspurn til hæstv. umhverfisráðherra, sem verður á dagskrá síðar, en ég vildi líka ræða þessa bágu stöðu sérstaklega við hæstv. ráðherra barna- og menntamála enda fékk ég ábendingar frá foreldrum leikskólabarna í Reykjavík sem var haldið inni við þessar aðstæður. Það er enda ekki óhætt að hleypa viðkvæmum hópum eins og börnum út í svo mikla loftmengun eins og mældist m.a. þessa daga. Mér skilst að þetta komi reglulega fyrir á leikskólum, ekki síst hér í höfuðborginni, en við hæstv. ráðherra erum einmitt þingmenn Reykvíkinga. Starfsmenn leikskóla hafa þarna engin önnur ráð en að skerða útivist barna.
Loftgæði eru almennt talin mikil á Íslandi. Þó mælist svifryk reglulega yfir skilgreindum viðmiðunarmörkum þannig að það ógnar heilsu sérstaklega viðkvæmra hópa. Umferð hefur auðvitað áhrif á loftgæði á höfuðborgarsvæðinu en sömuleiðis berst fok til svæðisins, m.a. frá Landeyjum. Íbúar munu áfram þurfa að komast leiðar sinnar og við færum víst ekki borgina til að koma í veg fyrir fok. Þess vegna skipta mótvægisaðgerðir svo miklu máli; gerð malbiks en ekki síst rykbinding og tíðni gatnaþrifa.
Ég kemst ekki hjá því að nefna að íbúðargötur í Reykjavík eru bara hreinsaðar einu sinni á ári, mun sjaldnar en t.d. götur í Kópavogi og í Hafnarfirði. Götuhreinsanir eiga auðvitað að vera fastur liður í þjónustu við borgarbúa. Hæstv. ráðherra er auðvitað ekki vegamálaráðherra og ekki umhverfisráðherra en hún er ráðherra barnamála og menntunar þeirra sömuleiðis. Útileikur og útinám barna hefur margvísleg áhrif bæði á heilsu og líðan þeirra, ekki síst á tímum offitu- og kyrrsetuvanda. Í menntunarfræðum er enda lögð áhersla á útileik og útinám. Svo reyndar vill svo vel til að flokkur hæstv. ráðherra stýrir málum hér í höfuðborginni, er í meirihluta í Reykjavíkurborg, og getur því haft áhrif þar til góðs.
Mig langar því að heyra það frá hæstv. ráðherra hvort hún hyggist, í krafti stöðu sinnar og embættis, grípa til aðgerða þar sem útivist leikskólabarna í Reykjavík er reglulega skert vegna ástands loftgæða þar?