áhrif loftgæða í Reykjavík á útivist leikskólabarna.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að taka upp þetta mál sem hljómar lítið en er stórt. Það er kannski lítið vegna þess að það er einfalt að ganga í verkið og laga mjög mikið. Það er með því að hreinsa göturnar. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir viðbrögðin en mér fundust þetta ekki vera svona hæstv. ráðherra Ingu Sæland-leg viðbrögð. Ég var að vonast til þess að hæstv. ráðherra myndi gera eins og hæstv. ráðherra gerir stundum og sé bara ákveðin og segi: Að sjálfsögðu tek ég upp símann og hringi í mitt fólk í Ráðhúsinu og segi þeim að laga þetta. Hæstv. ráðherra myndi fá stuðning við það. Þetta er ekki flókið. Þetta er eitt af þessum mörgu hlutum í grunnþjónustu Reykjavíkurborgar sem er ekki sinnt.(Mennta- og barnamrh.: Það er ekki vinsælt þegar ég tek upp símann. ) [Hlátrasköll í þingsal.]
Virðulegur forseti. Þetta var með betri framíköllum sem hafa komið lengi. En ég stend við áskorunina og hvet hæstv. ráðherra til að taka upp símann eða þá bara ganga yfir í Vonarstræti ef síminn er vesen. Hæstv. ráðherra fær níu af tíu möguleikum fyrir þetta framíkall.