áhrif loftgæða í Reykjavík á útivist leikskólabarna.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa skemmtilegu umræðu og enn og aftur fyrir þetta nauðsynlega samtal. Í fyrsta lagi þá náttúrlega kemur ekki til greina að ég fari að taka upp símann. Það vita allir að það er ekki vinsælt. Í öðru lagi, ef okkur hefur tekist í ríkisstjórninni að koma þeim skilaboðum til ákveðinna fulltrúa í hv. stjórnarandstöðu að við séum sameinaðasta ríkisstjórn allra tíma þá er markmiðinu náð. Takk fyrir það. Við erum sennilega sameinaðasta ríkisstjórn allra tíma þannig að það er gleðilegt. Og jæja, ég mun frekar taka sópinn ef það er það sem er verið að tala um og fara að sópa sjálf heldur en að taka upp símann. Fyrir utan það að ég hef frekar verið á móti því sem hefur verið stefna hér, að þrengja og þrengja að bílaumferðinni og fækka og fækka bílum. Ég hef frekar verið á móti því. En ég get ekki heyrt annað en að málshefjandi og þeir sem hér hafa verið að segja að það verði að grípa nauðsynlega til aðgerða, séu í rauninni hlynntari því en þeir hafa viljað vera láta, að setja okkur öll á hlaupahjól og hjól og jafnvel línuskauta. Ég er ekki þar.
Við vitum að það hefur verið viðtekið í gegnum tíðina, líka fyrir norðan og úti um allt land, að ef við höfum fengið sérstaklega lygnur og froststillur og umferð hefur verið mikil, þá eðlilega verður mikil loftmengun. Við vorum líka búin að heyra af t.d. börnunum sem voru á leikskólanum hérna niður við spítalann eða í Fossvoginum að þau gátu ekki farið út við ákveðnar aðstæður þegar var verið að nota líkbrennsluofna og annað slíkt. Það eru ýmsar áskoranir og ég treysti því bara að við getum sameiginlega unnið að því. En ef ég, sem var nú frekar dæmd fyrir það að vera þrír ráðherrar í einu, á að fara að taka yfir í rauninni verksvið borgarinnar líka og æða inn í stjórnsýslu hennar og yfirtaka allt, þó svo að Inga sé svolítið að fara út fyrir boxið, nei, þá geri ég það ekki. En til er ég í að vinna að málum fyrir velferð barnanna okkar af öllu hjarta hér eftir sem hingað til. Og aftur, takk fyrir umræðuna.