157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

helmingamokstur.

430. mál
[16:41]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég vakti máls á þessum málaflokki fyrir alllöngu í ræðu hér á þinginu. Sú ræða vakti athygli hv. þm. Ingvars Þóroddssonar og áttum við talsvert spjall eftir það. Hann hefur hér komið málinu áfram og það er vel. Til að bregðast við því sem kemur fram í yfirferð hæstv. ráðherra vil ég segja að hæstv. ráðherra féll hér í gröf eigin áhugamáls, sem er sameining sveitarfélaga, og fór að sjálfsögðu að tala um hversu margir byggju á svæðinu. Þá ætla ég að benda hæstv. ráðherra á það að eitt best mokaða sveitarfélagið á Norðausturlandi er Tjörneshreppur sem ráðherra hefur nú talsvert átt við. Að öðru leyti vil ég bara taka það sérstaklega fram að þetta er mál sem skiptir gríðarlegu máli fyrir umfangsmikil og landmikil sveitarfélög með marga kílómetra af þessum helmingamokstursvegum. Eitt dæmi um slíkt sveitarfélag er Þingeyjarsveit. Ég hvet ráðherra til dáða í að koma almennilega til móts við þessi sveitarfélög.