stæðiskort.
Frú forseti. Ég þakka aftur hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir aðstoðina og þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir að vera hér til svara. Ég vil núna beina sjónum að mikilvægu réttindamáli sem snýr að handhöfum stæðiskorta, þ.e. fyrir hreyfihamlaða, og þeirri þróun sem hefur orðið í notkun sjálfvirkra kerfa við bílastæðavöktun. Áður en lengra er haldið vil ég geta þess að hv. þm. Vilhjálmur Árnason sendi á síðasta þingi fyrirspurn til skriflegs svars til ráðherra, en mér þótti tilefni til að fylgja málinu eftir þar sem vandamálið er enn til staðar.
Í dag eru dæmi um að einstaklingar með fullgild stæðiskort séu ranglega rukkaðir af sjálfvirkum kerfum sem lesa bílnúmer og senda út kröfur án þess að taka nægilegt mið af þeim lögbundna rétti sem handhafar stæðiskorta njóta. Það getur einfaldlega ekki verið ásættanlegt að fólk sem á skýran rétt samkvæmt lögum þurfi síðan að verja tíma og orku í að andmæla röngum kröfum. Lögin eru nefnilega nokkuð skýr. Samkvæmt 87. gr. umferðarlaga er handhafa stæðiskorts heimilt að leggja ökutæki í gjaldskyld bílastæði án sérstakrar greiðslu. Í svari ráðherra við fyrirspurn hv. þm. Vilhjálms Árnasonar kom líka fram að ráðuneytið teldi þetta gilda um bílastæði sem standa almenningi til boða og að rekstraraðilum bæri að tryggja að handhafar stæðiskorta gætu notið lögbundinna réttinda sinna. Ráðuneytið sagði jafnframt að það væri mjög óæskilegt ef þessi heimild krefðist íþyngjandi aðgerða af hálfu handhafa stæðiskorta.
Hér rekast saman annars vegar lögbundin réttindi og hins vegar tæknileg framkvæmd og persónuvernd. Sýslumannaráð hefur, að ég best veit, hafnað miðlun og vinnslu upplýsinga sem um ræðir með þeim rökum að hún þurfi að eiga sér skýra heimild í 1. mgr. 9. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Að mati ÖBÍ er þessi afstaða byggð á röngum forsendum. Þá má því velta því upp í þessu samhengi hvort breyta þurfi 9. og 11. gr. persónuverndarlaga eða setja skýrari sérheimildir í lög um stæðiskort og framkvæmd þeirra.
Umboðsmaður Alþingis hefur líka bent á að þetta heyri undir yfirstjórn innviðaráðherra og hefur upplýst að embættið hafi haft það til skoðunar að eigin frumkvæði að athuga hálfsjálfvirkni álagningar gjalda í ljósi áhrifa hennar á handhafa stæðiskorta. Það eitt og sér ætti að vekja okkur til umhugsunar um mikilvægi þess að bregðast við.
Ég spyr því hæstv. innviðaráðherra í fyrsta lagi: Til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa til að tryggja að sjálfvirk kerfi geti greint og virt réttindi handhafa stæðiskorts og þannig komið í veg fyrir að lögmætir handhafar verði ranglega rukkaðir? Það má geta þess að stafræn útgáfa stæðiskorta á island.is er þegar til og er örugg.
Í öðru lagi spyr ég: Telur ráðherra koma til greina að sýslumenn veiti innheimtuaðilum aðgang að upplýsingum um handhafa stæðiskorta?
Í þriðja lagi: Telur ráðherra núgildandi lagaramma og reglugerðir nægilega skýr til að mæta þessum tæknilega vanda? Ef svo er ekki, hvaða breytingar liggja fyrir eða eru fyrirhugaðar?
Ég hlakka til að heyra svör hæstv. ráðherra og til umræðunnar.