157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

stæðiskort.

434. mál
[16:57]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir að vekja máls á þessu og sömuleiðis hæstv. ráðherra fyrir að vera hér til svara. Ég renn nú frekar blint inn í þetta mál en ég á mér hundaflautu í mínu lífi og hún heitir persónuverndarlög. Ég get ekki orða bundist yfir þeim svörum sem hv. þingmaður lýsir að Öryrkjabandalagið hafi fengið frá sýslumannaráði varðandi meint ólögmæti á vinnslu persónuupplýsinga sem varða fatlaða einstaklinga, fólk með fötlun. Hér tel ég nauðsynlegt að skoða 2. tölulið 11. gr. betur, en ég vil svo sem ekki leysa þennan lögfræðilega vanda sem er mjög auðleysanlegur. Fólk verður bara að fara inn með þeim ásetningi í svona áskoranir að leita lausna en ekki búa til og reisa veggi. Ég tel það einsýnt með hliðsjón af skyldu aðila eins og sýslumannaráðs að sýna samfélagslega ábyrgð í því að fara á undan með góðu fordæmi og ryðja úr vegi þeim raunverulegu hindrunum sem verða til í stjórnsýslunni í málum sem þessum. Lögin eru til staðar og lausnirnar eru til staðar.