stæðiskort.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og fyrirspyrjanda fyrir að vekja máls á þessu. Ég heyri að hér er verið að endurvekja umræðu m.a. um tveggja ára gamla fyrirspurn frá mér, um gjaldtöku af handhöfum stæðiskorta. Það er mikilvægt að við höldum þessu á lofti. Hæstv. ráðherra var skýr með það, eins og reyndar þáverandi ráðherra sömuleiðis, að hreyfihamlaðir séu undanþegnir greiðsluskyldu í öllum gjaldskyldum bifreiðastæðum, óháð rekstrarformi. Hins vegar finnst mér ákveðin vonbrigði að heyra að það liggi ekki fyrir hvaða leið verði farin, ef ég skildi hæstv. ráðherra rétt. Hvað hefur þá gerst allan þann tíma sem er liðinn frá því að ég lagði þessa fyrirspurn fram? Mér virðist það ekki hafa verið mikið og íbúar þessa lands, m.a. hreyfihamlaðir, eru einhvern veginn fastir áfram í þessum frumskógi bifreiðastæða.