stofnun nýs innviðafélags.
Virðulegi forseti. Ég fagna því að við séum að ræða fjármögnun á samgöngumannvirkjum og innviðafélag sem hefur verið lengi til umræðu. Orðin sporin hræða voru notuð hér áðan og það er kannski þess vegna sem maður verður svolítið smeykur ef maður les bæði lagafrumvarpið og greinargerðina sem því fylgir sem nú hefur komið fram um innviðafélag. Hæstv. ráðherra sagði hér áðan að tekjur af umferð hefðu dregist saman. Á sínum tíma drógust tekjur af umferð vissulega saman en upp í það gat er löngu búið að stoppa með því að hækka bifreiðagjöld rafmagnsbíla. Það er búið að setja kílómetragjald á rafmagnsbíla, það er búið að hækka kolefnisgjöld og það er búið að afnema virðisaukaskattsundanþágur og annað slíkt, þannig að það er búið að stoppa í það gat, plús svo allar þær álögur sem voru settar núna um áramót á umferðina aukalega og skiluðu sér ekki inn í samgönguáætlun. Það hræðir mig í þessari greinargerð að það er heimild tveggja ráðherra til að færa þegar byggð mannvirki inn í félagið til að auka hlutaféð og gera þetta greiðsluhæft. Það er heimild til að færa inn þegar byggð mannvirki (Forseti hringir.) til að rukka gjöld eins og á Reykjanesbrautinni sem er verið að fresta núna í samgönguáætlun — ofan á öll hin gjöldin. Það er það sem hræðir mig.