157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

stofnun nýs innviðafélags.

437. mál
[17:18]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir) (M):

Frú forseti. Það var kannski mest sláandi að heyra að hæstv. ráðherra telji ekki nóg komið í skattheimtu á bifreiðar. Hér hefur legið alveg fyrir, eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason sagði áðan, að það er búið að margsegja okkur að það sé stöðugt verið að loka gatinu. Kílómetragjaldið, vörugjöldin, hvað voru þau þá? Var það eitthvað allt annað? Svo langar mig að benda á að það hlýtur eiginlega að vera að það verði gerð einhvers konar dótturfélög. Ef það verður ekki dótturfélag utan um hvert verkefni þá liggur það í augum uppi að það verður erfiðara að fá fjárfestingu inn í verkefnin. En að öllu öðru óbreyttu, ef þetta er gert vel, þá er þetta þess eðlis að það verður örugglega slegist um að fá að taka þátt í verkefninu. En til þess þarf ráðherra að liðka fyrir málum. Hann þarf að sækja þetta fjármagn og hann þarf að liðka fyrir, mögulega með lagabreytingum. Hæstv. ráðherra nefndi hér Sundabraut sem er sagt að eigi að vera arðbært verkefni. Hann nefndi Ölfusárbrú, það er sagt að það eigi að vera arðbært verkefni. Svo nefndi hann Fljótagöng en það verkefni er sagt ekki vera arðbært. Er það rétt skilið að hæstv. ráðherra ætli að setja þetta saman í innviðafélagið? Það var kannski það sem mig vantar svar við. Er ekki eðlilegra að slíta þetta í sundur og að ríkið þurfi, eðlilega, að koma meira að Fljótagöngum af því að þau eru mögulega samfélagslega arðbær þó að það sé ekki fjárhagslega arðbært fyrir fjárfesta?

Annars þakka ég hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt í umræðunni og öðrum sem tóku þátt.