fækkun endómetríósuaðgerða hjá Klíníkinni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir fyrirspurnina. Það er þannig að Sjúkratryggingar semja fyrir hönd ríkisins um aðgerðir við einkaaðila og höfðu til þess ákveðna fjármuni í fjárlögum 2025 sem mikilvægt var að nýta sem best í þágu heildarinnar. Þar voru margar aðgerðategundir undir og áherslan ekki síst á liðskiptaaðgerðir þar sem bið var hvað lengst. Bið eftir endóaðgerðum hafði styst og svigrúm var til endóaðgerða á Landspítalanum þar sem hefur orðið veruleg uppbygging á þessu sviði. Sérhæfð þekking hefur verið efld, verklag þróað og samstarf milli fagstétta aukið. Með þeim breytingum hefur geta kerfisins til að sinna endóaðgerðum aukist og þjónustan orðið stöðugri. Um mitt árið 2025 kom svo ákall vegna lengdrar biðar á Klíníkinni og var hægt að bregðast við með fjölgun aðgerða, 70 til viðbótar við áður ákveðnar 100. Sama svar á í raun við árið 2026. Ég hef ekki upplýsingar um nákvæman aðgerðarfjölda. Fyrirspyrjandi nefnir 111, mér hefur verið sagt 135. Landspítalinn hefur gert 150–160 aðgerðir síðastliðin ár og kveðst geta bætt við 100 aðgerðum án vandkvæða. Akranes hefur gert 35. Geta kerfisins er því til staðar en landlæknir áætlar þörfina 300–350 aðgerðir í ár.
Í fyrra tók sú sem hér stendur ákvörðun um að fela embætti landlæknis, í samstarfi við okkar helstu sérfræðinga, að gera klínískar leiðbeiningar um meðhöndlun endómetríósu til að freista þess að ná sátt um hvernig sjúkdómurinn skuli meðhöndlaður, ekki síst í ljósi þess að á Íslandi hafa verið gerðar hlutfallslega mun fleiri skurðaðgerðir en t.d. í Svíþjóð þar sem þróunin hefur verið að fækka aðgerðum og nota í staðinn lyf og heildræna meðferð í takti við alþjóðlegar leiðbeiningar, auk þess sem kviðsjárspeglanir eru ekki lengur taldar nauðsynlegar við greiningu á endómetríósu. Sömuleiðis er það markmið mitt að auka samstarf og samhæfingu þjónustuveitenda betur en verið hefur, bæði milli þjónustustiga og eins milli opinbera og einkarekna kerfisins. Áðurnefndur starfshópur skilaði starfsskýrslu og klínískum leiðbeiningum til mín í fyrradag. Þar er skilgreint hlutverk hvers þjónustustigs þar sem þyngsta þjónustan felur í sér þverfaglega nálgun mismunandi sérgreina læknisfræði, verkjateyma og fleiri fagstétta. Sú nálgun er jú einungis í boði á Landspítala og því mikilvægt að læknar og annað starfsfólk teymisins haldi þekkingu sinni vel þar sem það teymi á að sinna flóknustu sjúklingunum. Í leiðbeiningunum er einnig fjallað um greiningu og meðferð sjúkdómsins, byggt á bestu þekkingu, en stuðst var við evrópskar leiðbeiningar. Þá er ljóst að koma þarf á miðlægum biðlista eftir skurðaðgerðum og verður það gert.
Frú forseti. Heildarmarkmið stjórnvalda er að tryggja að konur með endómetríósu fái tímanlega og góða þjónustu, hvort sem hún er veitt innan opinberra stofnana eða með samningum við einkaaðila. Með þeirri þróun sem nú á sér stað er leitast við að ná betra jafnvægi milli þessara þátta, styrkja grunnkerfi heilbrigðisþjónustunnar og tryggja að úrræði utan þess séu nýtt markvisst og á ábyrgan hátt. Það er jú þannig að það er ekki skynsamlegt að útvista mörgum aðgerðum og láta endómetríósuteymi Landspítala og skurðstofu þar vera kyrrar á meðan. Næst á dagskrá heilbrigðisráðuneytis er að vinna nánari skilgreiningu þjónustunnar úr áðurnefndri skýrslu.