fækkun endómetríósuaðgerða hjá Klíníkinni.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga atriði hér og hæstv. ráðherra fyrir að vera til svara. Hér verðum við að beita öllum tiltækum ráðum til þess að sem flestar konur fái sem fljótlegustu lausn sinna mála þegar um endómetríósu er að ræða og þar má rekstrarformið ekki trufla á neinn hátt. Ég held að við getum þakkað Klíníkinni og öðrum einkaaðilum fyrir að auka samkeppnina og valmöguleikana í þessu til þess að þessi mál þróist og það komi meiri þrýstingur á þetta í kerfinu og að fleiri fái lausn sinna mála hratt og örugglega. Þannig verðum við að hafa það. Þar sem endómetríósa getur leitt til ófrjósemi þá held ég að það þurfi líka að endurskoða hvaða aðgerðir við erum nú þegar að niðurgreiða, eins og ófrjósemisaðgerðir karla. (Forseti hringir.) Kannski ættum við bara að skipta greiðsluþátttökunni aðeins betur þarna.