fækkun endómetríósuaðgerða hjá Klíníkinni.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda, hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur, fyrir að vera með þetta mikilvæga mál hér til umfjöllunar. Það er auðvitað þyngra en tárum taki að vita af angist þeirra kvenna sem eru í þeirri stöðu að vita hver lausnin á bæði þeirra kvölum og angist getur verið en kerfið er kannski ekki alveg að gera allt það sem það gæti mögulega gert til þess að aðstoða þær, það er alla vega þeirra upplifun og því miður virðist margt benda til þess. Ég verð að fá að segja að ég þekki þetta aðeins út frá þeim vinkli að konur hafi áhyggjur af frjósemi sinni vegna þessa sjúkdóms. Að glíma við ófrjósemi er eitt en ofan í þennan sjúkdóm — ég held að fólk geti ekki alveg ímyndað sér hvers konar kvalir það eru. Mig langar að þakka að þetta sé rætt hér því kerfið verður að stíga upp úr kreddum um hvar lausnin sé. (Forseti hringir.) Það verður einfaldlega að veita lausnina og þeim líkn sem bíða.