157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

fækkun endómetríósuaðgerða hjá Klíníkinni.

446. mál
[17:38]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir og hv. þingmönnum sem hafa komið að máli. Hæstv. ráðherra fór yfir það að það væri mikilvægt að þekking héldist hjá hinu opinbera, sérstaklega út af flóknu aðgerðunum. Ég tek undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur að aðgerðafjöldi bendir ekki til þess að það sé eitthvert sérstakt vandamál og vildi sömuleiðis nefna að í flestum tilvikum er auðvitað ekki þörf á endóteyminu fyrir flóknustu aðgerðirnar. Hins vegar býður Landspítalinn ekki upp á sérhæfða þjónustu við endókonur með ófrjósemi sem Klíníkin gerir hins vegar. Svo langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún hafi skoðað af hverju konur leiti í meira mæli til Klíníkurinnar en Landspítalans eða skiptir það hreinlega ekki máli?

Hæstv. ráðherra fór yfir að aðgerðum hafi fjölgað í einhverjum samanburði. Ég myndi halda að það væri gott. Þegar ég byrjaði að skoða þessi mál þegar ég kom fyrst inn á þing þá minnir mig að opinberar tölur hafi sýnt að greiningartíminn væri 7–10 ár, sem konur væru að velkjast um í heilbrigðiskerfinu og vissu hreinlega ekki hvað amaði að þeim. Núna þegar það er orðin svona mikil umræða og þekkingaraukning á þessum sjúkdómi þá myndi ég halda að það yrði smá innspýting í aðgerðum til að byrja með fyrstu árin og það væri jákvætt.

Varðandi miðlægu biðlistana þá langaði mig til að spyrja hæstv. ráðherra, því ég man að þetta kom fram í opnu bréfi Endósamtakanna til hæstv. ráðherra síðastliðið sumar, hvenær þeir verða að veruleika. Endósamtökin hafa margítrekað komið því á framfæri, m.a. í þessu opna bréfi, að það sé mikilvægt að þjónusta við endósjúklinga sé aukin en ekki dregið úr og að þeirra mati er niðurskurður á aðgerðum einkaaðila skerðing á þjónustu, ekkert annað. Þetta eru skýr skilaboð frá Endósamtökunum.

Ég er með tvær spurningar að lokum til hæstv. ráðherra: Hefur ráðherra fengið viðbrögð frá Endósamtökunum við þessari ákvörðun, þessari stöðu, fækkun aðgerða hjá Klíníkinni? Er hæstv. ráðherra með þessari ákvörðun að hugsa um hag endósjúklinga eða (Forseti hringir.) er enn og aftur gamaldagshugsun og fordómar gagnvart einkaaðilum að byrgja hæstv. ráðherra sýn?