157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

Schengen-samstarfið.

493. mál
[18:07]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem er alllöng í fimm mínútna umræðu. Kannski fyrst um ákvörðun spænskra yfirvalda og stjórnvalda um að veita tilteknum hópi einstaklinga tímabundið atvinnu- og dvalarleyfi. Þetta er ákvörðun sem er tekin á grundvelli spænskrar löggjafar og telst fyrst og fremst vera innanríkismál Spánar. Hvert ríki innan samstarfsins hefur ákveðið svigrúm til að ákveða á grundvelli eigin laga og stefnu hvernig þau haga sínum atvinnu- og dvalarleyfismálum. Hins vegar er auðvitað algjört grundvallaratriði að slíkar aðgerðir séu metnar í ljósi skuldbindinga og mikilvægt að ríki sem grípa til slíkra aðgerða hafi hliðsjón af öryggissjónarmiðum og sameiginlegum reglum samstarfsins. Hv. þingmaður vísar hér til orða Magnusar Brunners sem sýnir auðvitað að vaktin er staðin um það að það er svigrúm og það eru heimildir innan einhverra marka. En ég tel líka mikilvægt að gæta þess vandlega að aðgerðir af þessu tagi sendi ekki þau skilaboð að ólögmæt dvöl innan Schengen-svæðisins sé raunhæf leið til að afla sér dvalarleyfis síðar, að við séum skýr með það.

Samkvæmt Schengen-reglum hefur útlendingur sem hefur gilt dvalarleyfi í einu ríki rétt til að ferðast innan annarra ríkja í allt að 90 daga, gilt leyfi og heimild til ferðalaga, enda uppfylli hann þá skilyrði um ferðaskilríki og sé ekki skráður í SIS-kerfinu, Schengen-upplýsingakerfinu, sem flaggar þegar ástæða þykir til. Þessi réttur er því eingöngu til skammtímadvalar. Ég vil líka nefna í þessu samhengi að kæmi t.d. til þess að einstaklingur sem hefur fengið dvalarleyfi á Spáni sæki síðan um alþjóðlega vernd annars staðar í öðru Schengen-ríki þá gilda reglur Dyflinnar um það. Samkvæmt þeirri reglu ber það ríki ábyrgð á meðferð umsóknar sem fyrst tók við manneskjunni eða heimilaði dvöl. Það yrði þá í þessu tilviki Spánn, þannig að girðingarnar eru sannarlega fyrir hendi.

Ég tel líka rétt að nefna hið nýja verndarsamkomulag ESB sem felur m.a. í sér uppfærðar málsmeðferðarreglur með svokallaðri AMMR-reglugerð sem miðar einmitt að því að skýra ábyrgð ríkja, hraða meðferð mála og stytta fresti, allt í þeim tilgangi að varðveita þessar girðingar. Ég sæki reglulega fundi í tengslum við Schengen-samstarfið og mér finnst það gott. Þetta er heilbrigður tónn og skynsamlegt regluverk því við ætlum heldur ekki að fara inn í þann heim, vona ég, að gera fólki erfitt um vik að ferðast. Við njótum sjálf þeirra réttinda og viljum eiga þau inni en íslensk stjórnvöld eiga líka í nánu samstarfi við Norðurlöndin um málefni útlendinga og landamæra, m.a. á vettvangi norræns samstarfsráðherra. Þar ræðum við aðgerðir og þar deilum við upplýsingum og þar metum við samstarfið í heild sinni.

Ég tel mikilvægt að nefna að Ísland er ekki aðili að þeim tvíhliða samningum sem Evrópusambandið kann að gera við þriðju ríki um aukið samstarf á sviði menntunar, tímabundinnar atvinnu eða hreyfanleika vinnuafls. Slíkir samningar gilda fyrst og fremst um aðildarríki Evrópusambandsins og réttindi innan þeirra, þannig að þó að einstaklingar geti ferðast innan Schengen-svæðisins samkvæmt almennum reglum um skammtímadvöl þá breytir slíkt samkomulag ekki grundvallarreglum um búsetu eða atvinnu í öðrum ríkjum. Einstaklingar þurfa eftir sem áður sérstaka heimild til að starfa eða setjast að í öðru ríki en því sem veitti upphaflega dvalarleyfið. Hvað Ísland varðar, af því að hv. þingmaður spyr, þá tel ég að áhættan af áframhaldandi för vegna þessa samkomulags sé takmörkuð.

Að lokum vil ég nefna að Schengen-ríkin og ríki Evrópusambandsins móta að verulegu leyti eigin innflytjendastefnu. Við horfum til þess þegar við skoðum Danmörk og Svíþjóð t.d., tvö Norðurlandaríki, Schengen-ríki, hluti af ESB, að þau reka ekki að öllu leyti sömu innflytjendastefnu, enda eru þetta fullvalda ríki í alþjóðlegu samstarfi. En svo er þessi sameiginlegi rammi, þessar sameiginlegu girðingar, þessi sameiginlegu markmið. Það er því eðlilegt að ríki fari mismunandi leiðir eftir eigin aðstæðum, eigin þörfum á vinnumarkaði og samfélagslegum þörfum. Frá sjónarhóli Íslands tel ég mikilvægt að fylgjast áfram með þróun mála, standa vörð um okkar hagsmuni, sérstaklega þegar kemur að þessari áframhaldandi för þar sem ákvarðanir í einu ríki geta vissulega haft einhver áhrif inn á Schengen-svæðið allt.