157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

Schengen-samstarfið.

493. mál
[18:13]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Mig langaði að gera athugasemd við þau ummæli hæstv. dómsmálaráðherra um þessar aðgerðir einstakra Schengen-ríkja. Það er vissulega rétt að einstök Schengen-ríki eru auðvitað fullvalda að einhverju leyti þegar kemur að þeirra málum. Hins vegar er það þannig að eins og t.d. staðan er á Spáni í dag þar sem stjórnvöld taka þessa fordæmalausu ákvörðun, að hleypa allt að 500.000 einstaklingum inn, veita þeim tímabundið dvalar- og atvinnuleyfi — þetta er auðvitað fordæmalaust og er augljóslega til þess fallið að reyna á stoðir Schengen-samstarfsins. Þess vegna fyndist mér einboðið að hæstv. dómsmálaráðherra tæki málið sérstaklega upp á næsta fundi samstarfsráðherra Schengen-ríkjanna sem hún sækir og geri þar athugasemdir við þessa fyrirætlan spænskra stjórnvalda.