Schengen-samstarfið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmönnum og hæstv. ráðherra kærlega fyrir ágætar umræður um þetta en tek líka undir orð hv. þm. Sigríðar Á. Andersen, mér fyndist ekki óeðlilegt að hæstv. dómsmálaráðherra íhugaði það alvarlega að skoða hvaða leiðir Ísland hefur til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Við erum þrátt fyrir allt að tala um þennan trausta ramma Schengen-samstarfsins og þegar menn sveigja hann og teygja, eins og má alveg færa rök fyrir að þessi ákvörðun Spánverja vinni í átt að, þá ættu menn að hringja ákveðnum viðvörunarbjöllum og segja að þetta sé kannski ekki æskileg nálgun fram á við, þó að maður þurfi ekkert að fara að deila um einstakar ákvarðanir, bara koma sjónarmiðum á framfæri. Hv. þm. Karl Gauti Hjaltason spyr einnig einmitt hvort það sé einhver uppgjafartónn kominn í menn gagnvart innflytjendamálum almennt á 21. öld á Vesturlöndum. Mér finnst mikilvægt að við sofnum ekki á verðinum hér og einhvern veginn leyfum þessum breytingum öllum úti í heimi, hvort sem er í Schengen-samstarfinu eða Evrópusambandinu eða annars staðar, að valta yfir okkur Íslendinga án þess að við fáum rönd við reist. Stríðsbrölt Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna núna mun örugglega hafa í för með sér enn aðra flóttamannabylgju til Evrópu og þá verður Ísland að standa í lappirnar og koma sínu regluverki í þannig skorður að við missum þau mál ekki úr höndunum eins og átök á fyrri stigum, eins og útlendingaregluverkið hefur verið frá 2015, 2016, hafa nú stundum leitt til. Það er mjög mikilvægt að við séum vakandi fyrir þessu og nýtum okkar rödd eins og við hugsanlega getum.