sauðfjárbúskapur.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka ráðherra fyrir tækifærið til að ræða stöðu sauðfjárræktar á Íslandi. Landbúnaður er ein af okkar höfuðatvinnugreinum og í ljósi breyttrar stöðu í alþjóðamálum er enn mikilvægara að við horfum til hlutverks hans í þjóðaröryggi. Fæðuöryggi er órjúfanlegur hluti af þjóðaröryggi og mikilvægt að við horfum heildrænt á verkefnið til að tryggja það. Það að tryggja bændum möguleika á að lifa af sauðfjárrækt er því brýnt mál. Fækkun sauðfjár er áhyggjuefni því að sauðfjárrækt er ein af þeim greinum þar sem við þurfum hvað minnst af aðfluttum vörum til að geta haldið matarkistunni opinni. Nú er í fyrsta sinn færra sauðfé á Íslandi en fólk. Þetta hefur líka afleidd áhrif á ýmsa þætti stuðnings atvinnugreinanna. Það er gríðarlega mikilvægt að okkur takist vel að byggja áfram upp sauðfjárrækt á Íslandi, ekki bara að stoppa þá þróun sem er núna heldur að byggja áfram greinina upp og tryggja að fólk geti lifað af sauðfjárrækt með þeim hætti að það verði eftirspurn eftir því að komast að og starfa við hana.
Virðulegur forseti. Við þurfum að huga vel að því að styðja við sauðfjárræktina og því vil ég spyrja ráðherra: Hefur ráðherra lagt mat á áhrif fækkunar sauðfjár á Íslandi á atvinnustarfsemi víða um land? Telur ráðherra að grípa þurfi til aðgerða vegna þessarar þróunar? Ef svo er, hverra? Og að lokum: Að hvaða leyti telur ráðherra sauðfjárbúskap vera hluta af fæðuöryggi og þar af leiðandi þjóðaröryggi landsins?