sauðfjárbúskapur.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir fyrirspurnina og fínt að fá tækifæri hér til að ræða þessi mál. Líkt og hv. þingmaður kom inn á í framsögu sinni hefur orðið veruleg fækkun sauðfjár hér á landi á undanförnum árum og áratugum. Þetta er töluvert löng saga. Fjöldinn fór hæst í kringum 1980. Síðan var 40% fækkun til ársins 1994 og síðustu 30 árin hefur orðið 30% fækkun þannig að árið 2024 var fjöldi kinda á vetrarfóðrum tæplega 350.000. Það er þannig að það var lengi nefnt í ferðamannaupplýsingum um Ísland að hér væru fleiri kindur en fólk en það er sem sagt ekki lengur rétt. Samhliða þessu hefur störfum fækkað en áfram er kallað eftir hagræðingu. Sauðfjárrækt er ákaflega mismunandi að umfangi eftir landshlutum þannig að stoðþjónusta og tengd starfsemi hefur ákaflega mismunandi þýðingu eftir svæðum þó svo að greinin sé dreifð um allt land. Hún er sums staðar mjög mikilvæg stoð í einstökum samfélögum en það er engin almenn regla. Síðan er það hitt, sem er rétt að vekja athygli á, að framleitt kjötmagn eftir hverja vetrarfóðraða kind hefur á síðastliðnum 30 árum aukist um 30% og ullarmagn á hverja kind hefur sömuleiðis aukist um 14% á sama tíma. Þessi framleiðniaukning er eftirtektarverð og framleiðslan í heild hefur langt í frá dregist jafn mikið saman og fjárfjöldinn og það er auðvitað bara ástæða til að hrósa bændum fyrir árangur í ræktun og kynbótastarfi.
Í samantekt Byggðastofnunar frá árinu 2022 var því beinlínis haldið fram að forsendur sauðfjárbúskapar væru brostnar. Síðan hefur staðan batnað þó að það sé enginn sem haldi því fram, hygg ég, að afkoman þar sé góð. Það er orðið nánast óþekkt að bú sem stunda sauðfjárrækt treysti eingöngu á tekjur af þeirri grein til framfærslu en hún passar stundum vel með annarri starfsemi eins og ferðaþjónustu eða annarri vinnu utan bús. Stuðningur hins opinbera við sauðfjárrækt hefur haldist óbreyttur þrátt fyrir minnkandi umfang og af þeim sökum hefur komið meiri stuðningur í hlut hvers og eins. Síðan er það auðvitað rétt að til viðbótar við ákveðinn mikilvægan þátt í fæðuöryggi þjóðar tengjast margs konar samfélagslegir og menningarlegir þættir í landinu sauðfjárrækt þannig að þetta er gríðarlega mikilvæg starfsemi fyrir menningu þjóðar okkar og ekki bara fyrir dreifbýlið, hygg ég að sé öruggt að segja, og það er auðvitað alvarlegt ef það verður þróun í átt til enn frekari fækkunar þar, umtalsverðrar fækkunar.
Þegar spurt er hvort ráðherra telji að grípa þurfi til aðgerða vegna þessarar þróunar þá er stóra málið akkúrat núna, þegar kemur að landbúnaði, að við erum í miðri vinnu, við erum að taka upphafsskrefin við að semja nýtt stuðningskerfi og styrktarumhverfi fyrir landbúnaðinn. Að öðru óbreyttu rynnu samningar ríkisins við Bændasamtökin út í árslok 2026 en við höfum náð samkomulagi um framlengingu þannig að verið er að vinna að þessu og það er náttúrlega verið að líta til margra mismunandi þátta. En grunnurinn er auðvitað þessi, að styrkja getu bænda til að þróa vinnu sína, tryggja nýliðun sem best við getum, tryggja kynslóðaskipti, tryggja nýsköpun, fæðuöryggi og þátt landbúnaðar, þar með talið auðvitað sauðfjárbúskapar, í heildarmynd samfélagsins. Þetta eru stóru skrefin.
Þegar spurt er hvort sauðfjárbúskapur sé hluti af fæðuöryggi að mati ráðherra er svarið auðvitað já. Samkvæmt áætlun byggja 53% af þeim matvælum sem við neytum á innlendri framleiðslu og kindakjötsframleiðslan er einn hluti þess. Það er rétt sem kom fram í máli hv. þingmanns að sauðfjárbúskapurinn býr yfir sérstöðu á þann hátt að sú grein byggir meira á innlendu fóðri og innlendum landkostum en aðrar helstu kjötframleiðslugreinar þannig að röskun á aðfangakeðju fóðurs til að mynda hefur minni áhrif þar. Það skiptir auðvitað máli. En eftir sem áður er greinin háð innfluttum aðföngum eins og landbúnaður almennt; olíu, dýralyfjum, tækjabúnaði og varahlutum og svona mætti lengi telja. Stóra atriðið í því að tryggja fæðuöryggi hér á landi er auðvitað að hafa þessa virðiskeðju mest undir okkar stjórn.