sauðfjárbúskapur.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir þessa ágætu fyrirspurn til atvinnuvegaráðherra. Ég ætla að blanda mér aðeins inn í umræðuna. Mikilvægur punktur sem hv. þingmaður kemur inn á sem snýr að þjóðaröryggi og fæðuöryggi sömuleiðis. Við erum búin að ræða hér margoft í gegnum tíðina um fæðuöryggi þjóðarinnar. Ég held að allir séu sammála um að við þurfum að standa að því en svo er nú minna um efndir þegar kemur að því að blása til sóknar hvað það varðar. Ég vil sömuleiðis taka undir með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að við stöndum vörð um landbúnað á Íslandi, ekki bara sauðfjárrækt. Þá þurfum við að hafa það sömuleiðis í huga að við þurfum að skapa landbúnaði ákveðin starfsskilyrði til þess að hann geti blómstrað. Grunnurinn að því að það sé hægt að stunda hér ákveðinn landbúnað er að bændur fái eitthvað fyrir það sem þeir framleiða. Þetta snýst því ekki eingöngu um ríkisstuðning (Forseti hringir.) heldur það að bændur fái almennilegt verð fyrir sína vöru. En ég vil þakka fyrir þessa umræðu, virðulegi forseti.