157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

sauðfjárbúskapur.

184. mál
[18:28]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Menn hafa oft tilhneigingu til þess að ræða um sauðfjárbúskap sem einhvers konar rómantík og einhver talaði um að þetta væri hálfgerður hobbíbúskapur. En málið er að sauðfjárbúskapur er atvinnugrein og við viljum að sem flestir bændur hafi það bara að fullri atvinnu að vera sauðfjárbændur. En til að það sé hægt þurfa sauðfjárbændur að fá viðunandi verð fyrir sínar afurðir og til að það sé hægt þá þurfum við að tryggja að það geti átt sér stað eðlileg hagræðing innan greinarinnar, hagræðing í afurðastöðvum og annað til að tryggja sem lægstan framleiðslukostnað á kindakjöti og lambakjöti og þá um leið tryggja betra verð til bænda. Ég held að það sé mjög mikilvægt. Það er líka mikilvægt að stjórnvöld — við náðum að stoppa þau í fjárlögunum þegar átti að breyta erfðafjárlögunum sem hefði orðið til þess að kynslóðaskipti í sauðfjárbúskap, m.a. hjá bændum, hefðu orðið erfiðari. (Forseti hringir.) Við megum ekki búa til neinar svona hindranir varðandi t.d. kynslóðaskipti.