sauðfjárbúskapur.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa umræðu. Það er ljóst að sauðfjárbúskapurinn varðar þjóðaröryggi okkar eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra í þessari umræðu. Ef ég man rétt þá voru árið 1980, fyrir 45 árum, milljón kindur á vetrarfóðrum á Íslandi. Það voru um fjórar kindur á hvert mannsbarn þegar maður ólst upp. En nú er það orðið svo að það er ekki ein kind á hvert mannsbarn í landinu. Það er breytingin sem hefur orðið. Við þekkjum það að það eru ákveðin svæði sem bókstaflega lifa af sauðfjárrækt. Hún hefur mjög mikið vægi eins og við þekkjum á norðausturhorninu, í Kelduhverfi, á Ströndum og á ákveðnum svæðum á Vestfjörðum líka fyrir utan Strandirnar, er mikið treyst á sauðfjárrækt. Svo er það riðan, sú vinna sem er verið að vinna þar skiptir líka miklu máli, og svo eru það ættliðaskiptin. (Forseti hringir.) — Rosalega er þetta stuttur tími.