157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

sauðfjárbúskapur.

184. mál
[18:31]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Það er ástæða til að þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir að vekja máls á stöðu sauðfjárbænda og leitast við að fá einhver svör frá hæstv. ráðherra. Það sem ég hef áhyggjur af hins vegar í þessari umræðu, eins og reyndar margri annarri þessi misserin, er að eitt er sagt og svo er eitthvað allt annað gert. Hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson nefndi hér áðan að það væri mikilvægt að sauðfjárbændur fengju verð fyrir sína framleiðslu. Þetta ætti nú að teljast sjálfsagt. En hvert stefnir ríkisstjórnin með okkur núna? Inn í Evrópusambandið þar sem helst er borgað fyrir að framleiða ekki. Um leið hafa hæstv. ráðherrar haft allt á hornum sér með það að bændur nái fram hagræðingu, t.d. í vinnslu, til að fá þó ekki væri nema örlítið hærri skerf af söluverðinu. Ég vil ljúka þessari örstuttu ræðu á því, frú forseti, að hvetja hæstv. ráðherra til að bregðast við, (Forseti hringir.) ekki bara lýsa því að jú, vissulega séu áhyggjuefni til staðar.