157. löggjafarþing — 84. fundur,  18. mars 2026.

sauðfjárbúskapur.

184. mál
[18:34]
Horfa

Fida Abu Libdeh (F):

Frú forseti. Ég vil þakka fyrir umræðuna. Af því að hæstv. ráðherra fór inn á nýsköpun í landbúnaði vil ég nefna að fyrir nokkrum árum var landbúnaðarsjóður sameinaður Matvælasjóði og nú eru matvælaframleiðendur að keppast við saltframleiðendur, við þörungaframleiðendur. Þó að framlag til landbúnaðar hafi aukist eru fleiri sem koma að og hafa aðgengi að þessum styrkjum og þá minnkar jafnan nýsköpun innan matvælaframleiðslu. Við viljum að landbúnaður og matvælaframleiðsla þróist á sama hátt og sjávarútvegur og búi til meiri verðmæti og skapi meira úr sauðfjárafurðum en tíðkast hefur.