157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.

[18:44]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég verð að játa það að þessi staða kemur mér talsvert mikið á óvart. Þingflokksformenn og forseti hafa verið í samtölum í dag um alls konar hluti þar sem var a.m.k. náð samkomulagi um, að því er menn töldu, að það yrðu ekki greidd atkvæði um lengri þingfund gegn ákveðnum tilfærslum á málum. En gott og vel, við erum þá hér. Ég ætla hins vegar að lýsa yfir talsverðum vonbrigðum mínum með afstöðu þingflokksformanns Miðflokksins í þessu. Það er ekki í samræmi við samtöl hinna þingflokksformanna stjórnarandstöðunnar. (SÁA: Hinna? (Gripið fram í: Hinna? (Gripið fram í.)))