157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.

[18:45]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég kem hér upp og ræði fundarstjórn forseta. Ég verð að viðurkenna að þetta upphlaup Miðflokksmanna kemur mér ansi mikið á óvart. Þingflokksformenn voru í samskiptum varðandi fyrirkomulag þingfundar og það kom ósk frá minni hluta um ákveðna hliðrun á málum í dagskrá varðandi næstu þingfundadaga. Orðið var við þeirri ósk með ákveðnu uppleggi sem m.a. þingflokksformaður Miðflokksins staðfesti í tölvupósti að hún gerði ekki athugasemdir við. Sá tölvupóstur liggur fyrir. Svo kemur hér hv. þingflokksformaður Miðflokksins, fer bak orða sinna og óskar eftir (Gripið fram í.) skyndilegri atkvæðagreiðslu. Hvaða leikrit er þetta? Hvaða tilgangi á þetta að þjóna? Það er sjálfsagt mál að kalla fólk í hús og framkvæma þessa atkvæðagreiðslu, en skiptir traust ekkert máli í samskiptum hv. þingflokksformanns Miðflokksins?