157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.

[18:46]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hér kemur þingflokksformaður Samfylkingar með rakalausar fullyrðingar, rakalausar fullyrðingar og ósvífni. Þingflokksformenn hafa verið í samskiptum við forseta sem lagði til fyrirkomulag á dagskrá á þessum þingfundi sem nú er hafinn. Þar var í engu getið um lengri þingfund, í engu getið. Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurðsson (GAS: Sigurjónsson. )— Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sendir hins vegar póst á aðra hv. þingflokksformenn með ósk um að það verði samkomulag um að það verði ekki atkvæðagreiðsla um lengd þingfundar. Þeirri ósk hefur sú sem hér stendur aldrei svarað og sá þann póst ekki fyrr en seint og um síðir. (Gripið fram í.) Aldrei svarað. Samkomulag annarra þingflokksformanna um þetta bindur í engu mig eða aðra þingmenn eða alla aðra þingmenn (Gripið fram í.) hér í þessum sal, (Gripið fram í.) bindur enga. (Forseti hringir.) Menn eiga bara að greiða hér atkvæði um þessa ósk (Forseti hringir.) um lengri þingfund sem menn hafa skoðun á, að hér sé verið að lengja þingfund (Forseti hringir.) sem er orðinn plagsiður á þessum þingvetri.

(Forseti (EÁs): Forseti biður þingmenn að virða ræðutíma.)