157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.

[18:47]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég verð að viðurkenna að þetta hryggir mig, þessi staða sem upp er komin hér í þingstörfunum og þessi málflutningur formanns þingflokks Miðflokksins. Líkt og fram hefur komið í máli forseta getur þessi atkvæðagreiðsla farið fram síðar í dag. En mér þykir miður að þetta sé bragurinn. Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég skil ekki alveg hvaðan hv. þingmaður er að koma. Við þingflokksformenn höfum verið í góðu samstarfi, átt í góðu samstarfi varðandi dagskrá þingsins og hvernig mál hafa gengið hér. Þingið hefur bara gengið prýðilega. Hún hefur lagt t.d. fram beiðnir varðandi dagskrá næstu daga og við höfum tekið vel í það, samþykkt það, en nú er verið að slá einhvern nýjan tón. Ég verð að viðurkenna að það hryggir mig og þetta kemur mér á óvart. Það er sjálfsagt að hér fari fram atkvæðagreiðsla síðar á fundinum en tónninn kemur á óvart.