um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.
Frú forseti. Ég hef áralanga reynslu sem þingflokksformaður í stjórnarandstöðu og ég kannast ekki við það að menn hafi beitt þeirri aðferð, í eðlilegri skák við stjórnarmeirihlutann, að kannast ekki við eigin orð þegar kemur að samkomulagi. Og að fara hér síðan upp og bíta höfuðið af skömminni með því að tala um ómerkilegheit af hálfu þingflokksformanna stjórnarmeirihlutans þegar þeir vísa í þetta samkomulag er eiginlega enn þá verra. Ég var viðstödd það samtal sem átti sér stað hér frammi þar sem talað var um að það væri samkomulag í dag um lengri þingfund en þaðan í frá yrði síðan kallað eftir atkvæðagreiðslu. Þetta liggur bara fyrir. Ætli menn síðan að ganga á bak orða sinna hér, gerið þið það þá, en eigið það við ykkur sjálf, ekki reyna að telja okkur trú um að við höfum heyrt eitthvað annað en við heyrðum af því að þannig er það ekki. Það er líka staðreynd að það er ekkert óalgengt við það að þegar tveir fundir eru haldnir, eins og gerist nú stundum, að það sé talað á fyrri fundi um samþykkt um lengri fund sem kemur á eftir. Þannig gerast kaupin á eyrinni. (Forseti hringir.) En haldið endilega ykkar striki, kallið eftir atkvæðagreiðslu, gangið á bak við þetta samkomulag. Við munum bregðast við því. (Forseti hringir.) Ég held að það sé fullreynt að fara í samningaviðræður við þennan minni hluta.