157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.

[18:51]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Nú held ég að hæstv. atvinnuvegaráðherra ætti að koma hérna og biðja þingflokksformann Miðflokksins afsökunar. Hún segir að hún hafi orðið vitni að einhverju þegar búið er að koma fram hérna að hv. þm. Sigríður Á. Andersen tók ekki þátt í þessum samningaviðræðum. Ég get staðfest að hér í dag í hliðarsal voru þingflokksformenn Samfylkingarinnar og Viðreisnar hlaupandi um allt að leita að þingmanni Miðflokksins sem var þá stödd á fundi. Það er með ólíkindum … (Gripið fram í: Hvað gerðist eftir það? )Það er með ólíkindum að halda því fram að þið sem eruð hér frá fyrsta degi (Gripið fram í.)(Forseti hringir.) búin að biðja um lengri þingfundi …

(Forseti (EÁs): Hljóð í þingsal.)

Þið ættuð að líta ykkur nær og koma skikki á þessi þingstörf. Og hvað er að fara að gerast í fyrramálið? Ég skal segja ykkur það. Það er búið að afboða fund í efnahags- og viðskiptanefnd vegna þess að meiri hlutinn vill ekki taka fyrir þingmannamál. Frekar frestið þið fundi. Þetta er ólíðandi.