um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Maður er ýmsu vanur í stjórnmálum og maður getur tekið á móti ýmsu skítkasti, jafnvel hér í þingsal, en ekki því að hér komi hér hæstv. ráðherra af öllum, hæstv. atvinnuvegaráðherra, og fullyrði um samskipti þeirrar sem hér stendur við annað fólk, bersýnilega án þess að hafa nokkuð fyrir sér í því. Svo því sé haldið til haga þá samþykkti ég tillögu forseta Alþingis um að taka mál út af dagskrá og taka annað mál fyrir eftir helgi sem fyrirhugað var á morgun. Í því fólst ekki neitt samþykki fyrir lengingu þingfundar nema síður sé. Hér var ákveðið að stytta dagskrána í dag. Menn kunna að hafa væntingar um að þær umræður gengju vel og þær kunna að ganga vel en í því felst ekkert samþykki fyrir lengd þingfundar.(Forseti hringir.) Aðrir þingflokksformenn (Forseti hringir.) hafa vélað um það en ekki (Forseti hringir.) sú sem hér stendur og hæstv. atvinnuvegaráðherra má vita það.
(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar það og biður hv. þingmenn um að virða ræðutímann.)