157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.

[18:54]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Í umræðum um fundarstjórn fyrr í dag sá hv. þm. Sigmar Guðmundsson sig knúinn til að koma hér upp og tala um ólíðandi framíköll þingmanna og að þau væru alveg einkennandi fyrir ákveðna þingmenn. Ég hef bara heyrt ein framíköll hér í dag í þessari fundarstjórn og þau koma frá hv. þm. Sigmari Guðmundssyni sem er nýbúinn að vera eins og presturinn að vísa veginn en fer hann ekki sjálfur. Margur heldur mig sig, hv. þm. Sigmar Guðmundsson, sem byrjar á fundarstjórn að kalla fram í.