157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.

[18:55]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Þetta er áhugaverð fundarstjórn, svo ekki sé meira sagt. Það er hárrétt hjá hv. þm. Jens Garðari Helgasyni að ég hef talað talsvert um framíköll og það er þungt í mér núna. Það sem ég upplifi að sé í gangi er þvert á það sem þingflokksformenn ræddu sín á milli. Það að samskiptaleiðirnar innan stjórnarandstöðunnar séu með svona miklum ólíkindum getur ekki verið á ábyrgð stjórnarmeirihlutans. Vissulega kallaði ég fram í og vissulega er það þannig að það er þungt í mér og vissulega er það þannig að ég get notað orðið ómerkilegt þegar mér finnst það. Mér finnst þetta ekki í samræmi við það sem búið var að ræða um. Svo einfalt er það. Við erum búin að samþykkja tilfærslu á ákveðnum málum til að mæta kröfum og óskum stjórnarandstöðunnar. Það var auðvitað ekki hægt að greiða atkvæði um lengd þingfundar á fyrri fundi, það liggur alveg í hlutarins eðli. Þetta veldur mér mjög miklum vonbrigðum (Forseti hringir.) af því að þrátt fyrir að það hafi oft gustað um í þessum sal (Forseti hringir.) þá hefur það nú samt í stóru myndinni verið þannig að orð hafa ágætlega staðið. (Forseti hringir.) Þetta er á öðrum skala en það.

(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar enn og aftur að ræðutími er ein mínúta í þessum lið.)