um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Já, hver veit hvað er satt og rétt í þessu, en ég skal bara upplýsa það hver skilningur minn sem almenns stjórnarþingmanns var á því samkomulagi sem hér hafði legið fyrir. Það var minn skilningur að það ætti ekki að boða atkvæðagreiðslu hér um lengd þingfundar og það var líka minn skilningur að það ætti að búa svo um hnútana að þau mál sem eru í dag á dagskrá myndu ganga greiðlega fyrir sig, jafnvel þannig að dagskrá myndi klárast. Þannig að ef óskað er eftir því að boðað sé til afgreiðslu um lengd þingfundar, væntanlega út af því að einhver er á móti því, þá ímynda ég mér, miðað við hvernig gengur í þessum sal, að það væri bjartsýnt að klára alla dagskrána sem eftir er á þeim hálftíma sem eftir er til kl. 19:30 þegar fundi yrði slitið, eðlilega. Þetta eru þau sjónarmið sem ég hef. Auðvitað ekkert að því að greiða atkvæði um þetta, en það var alla vega skilningur minn sem óbreytts stjórnarþingmanns að hér lægi fyrir samkomulag um að það yrði ekki boðað til atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar og að dagskráin gæti gengið greiðlega fyrir sig með þau mál sem eftir voru á dagskrá.