157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.

[18:59]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Þessi tilgerðarlega uppgerðarhneykslan hv. þm. Sigmars Guðmundssonar væri orðin kómísk ef hún fæli ekki í sér svona mikið yfirlæti. Þegar hv. þingmaður er staðinn að því að hafa farið með rangt mál þá er sögunni breytt og því haldið fram að vegna þess að einhverjir aðrir en hv. þm. Sigríður Á. Andersen hafi tekið líklega í hugmynd hv. þingmanns þá eigi hún bara að hlýða því. Er reglan sem sagt sú að ef ég eða hv. þm. Sigríður Á. Andersen spjöllum við þingflokksformann Flokks fólksins til að mynda og hann tekur vel í einhverja hugmynd, þá sé hv. þm. Sigmar Guðmundsson bundinn af því og væntanlega Samfylkingin líka? Ég held að það hefði farið betur á því að hv. þm. Sigmar Guðmundsson hefði reynt að draga í land, komast til baka frekar en að vaða enn lengra út í fúamýri.