157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.

[19:01]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég var einn þeirra þingmanna sem stóðu hér í dag þegar hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar gekk hér um húsið til að spyrja út í þessi mál og einn af þeim sem vísuðu á, eðli málsins samkvæmt, minn þingflokksformann, hv. þm. Sigríði Á. Andersen. Hún hefur hér sagt þingheimi frá því að hún hafi aldrei gengist við því að hér yrði ekki atkvæðagreiðsla um lengd þingfundar eða yfirleitt að hér yrði lengri þingfundur. Því eru fullyrðingar þingflokksformanns Samfylkingarinnar annars vegar og hins vegar þingflokksformanns Viðreisnar rangar og þeir hafa ekki getað hrakið orð hv. þm. Sigríðar Á. Andersen, eðlilega. Staðfesting af hálfu hv. þm. Sigríðar Á. Andersen liggur ekki fyrir og var ekki veitt. Því ættu þessir þingmenn að sjá sóma sinn í því að koma hingað upp í pontu, frú forseti, og biðja hv. þm. Sigríði Á. Andersen afsökunar á því að hafa haft hana fyrir rangri sök. Flóknara er það nú ekki.