um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.
Frú forseti. Mig langar að koma hér og hrósa forseta fyrir góða fundarstjórn í þessu átakamáli eða hvaða orð sem við viljum nota yfir það sem hefur gengið á síðustu mínúturnar. Það sem mig langar til að benda á er að það er ein af frumskyldum okkar sem þingmanna að gæta að heiðri Alþingis. Það er auðvitað vont þegar menn eru svo ósammála um það sem þeir héldu að þeir væru búnir að ná samkomulagi um og hér hafa gengið mjög þung orð manna á milli. Mig langar bara til að hvetja þingmenn, frú forseti, til að draga djúpt andann og ganga til dagskrár í kvöld. Okkur er engin vorkunn í því að vinna fram að miðnætti ef svo ber undir frekar en önnur kvöld eða öðrum sem vinna langan vinnudag í okkar ágæta samfélagi. En drögum aðeins djúpt andann og höldum áfram með mál sem eru á dagskrá. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)