157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.

[19:05]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Ég kem aftur upp út af orðum hv. þm. Víðis Reynissonar um að draga djúpt andann og að okkur sé engin vorkunn að vinna hér fram á kvöld. Okkur er nefnilega engin vorkunn að vinna hér fram á kvöld og okkur er engin vorkunn að mæta á nefndarfund í fyrramálið sem þið afboðið, hv. þingmenn meiri hlutans, ef það eina sem er eftir á dagskrá eru þingmannamál. Okkur er engin vorkunn að hafa nefndarfundi. Hins vegar er stjórnleysi og óstjórn í dagskrá þingfunda hæstv. forseta ólíðandi. Af hverju? Vegna þess að hv. þingmenn þurfa að mæta á fundi, þurfa að geta skipulagt sig á einhvern hátt. En hvernig er þetta búið að vera? Frá nánast fyrsta þingfundardegi er verið að óska eftir lengdum þingfundi út af óstjórn í málefnum hér í þingsal. Það er óbjóðandi gagnvart öllum.