um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.
Frú forseti. Ég ætla að nefna nokkur orð í tengslum við það sem hv. þm. Víðir Reynisson sagði hér áðan. Ég held að þetta snúist ekki um það að þingmenn séu latir til verka. Ég held að þingmenn gegnumgangandi (Gripið fram í.) — nei, ég veit að hv. þingmaður orðaði það ekki þannig en það að segja að okkur sé ekki vorkunn að vinna langa daga eins og aðrir sem vinni t.d. vaktavinnu ýjar dálítið að því. Ég bara hvet þingmenn almennt til þess að fara ekki í þá vegferð því ég held að gegnumgangandi séu þingmenn að sinna sínum störfum þótt ekki sé hér í þingsal. Það breytir því ekki og ég hef komið hér upp undir fundarstjórn forseta áður og gagnrýnt með hvaða hætti það hefur orðið að einhvers lags reglu síðan í febrúar, þriðju viku febrúar ef ég man rétt, að óska eftir lengri þingfundi. Það ber ekki vott um neitt sérstaklega gott skipulag, það ber ekki neinn vott um að hér sé verkstjórn að störfum. Skipulagsleysið er með þeim hætti að þetta er til komið vegna þess með hvaða hætti mál eru lögð fram, hvenær og hvernig þau eru búin. En ég hvet okkur þingmenn til þess a.m.k. að stilla okkur ekki (Forseti hringir.) upp í það lið að ýja að því að við séum löt til verka þó að gerð sé athugasemd við það (Forseti hringir.) að fundir séu hér til miðnættis dag eftir dag, til komnir (Forseti hringir.) vegna þeirra ákvarðana sem stjórnarflokkarnir hafa fulla stjórn á.
(Forseti (EÁs): Forseti vill ítreka að ræðutími er ein mínúta, ekki ein og hálf, undir þessum lið.)