um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Ég vil fá að lýsa yfir miklum vonbrigðum með háttsemi Miðflokksins hér í dag. Það var búið að ganga út frá því að hér yrði ekki atkvæðagreiðsla en svo snerist þeim hugur og þau eiga bara að vera ærleg varðandi það. En mest fór þó fyrir brjóstið á mér orð hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur þar sem hún sakaði forseta um óstjórn á þinginu. Þar finnst mér ómaklega vegið að hæstv. forseta sem leggur að sjálfsögðu dagskrá vikunnar fyrir þingflokka og hún er samin í samtölum við þingflokksformenn. Mér finnst hart vegið að forseta þingsins og hv. þingmanni ekki til sóma að láta þessi orð falla.