um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.
Frú forseti. Ég finn mig knúinn til að koma hérna upp og taka þátt í þessari umræðu um það sem er að raungerast hér í dag. Það er auðvitað með ólíkindum að það sé ekki hægt að semja og ræða sig niður á einhverja niðurstöðu um það hvernig á að haga þingfundum hér í þessum sal. Maður hefði ætlað að hægt væri að semja um þetta og að það væri hægt að treysta því sem sagt er. Eins og hefur komið fram í ræðum nokkurra þingmanna Miðflokksins hér þá virðast þeir hafa stillt þessu þannig upp að þeir hafi vitað hvað stæði til en síðan hlaupið undan og ekki viljað ræða málin. Þetta er auðvitað bara stórmerkilegt. Ég þakka forseta fyrir góða stjórn. Það er krefjandi, trúi ég, að stilla upp dagskrá þannig að hún haldi. En það þurfa allir aðilar hér í salnum að taka þátt í því að láta dagskrána ganga upp. Það hvílir á stjórnarandstöðunni sem og stjórnarliðum.