157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.

[19:10]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég geri ekki mikið af því að koma hér upp í fundarstjórn en í kvöld getur maður auðvitað ekki orða bundist. Hér eru þung orð látin falla um að hér ríki óstjórn og að ekki sé haldið hér á málum með réttum hætti af hálfu forseta þingsins. Hér er farið með einhvern leikþátt um að gengið sé fram hjá hv. þingflokksformanni Miðflokksins. Heldur stjórnarandstaðan eða viðkomandi að við sjáum ekki í gegnum þetta? Hér er málfrelsi og hér hefur verið veittur ríkur tími til að ræða mál í þaula á sama tíma og stjórnarandstaðan kvartar yfir því að ekki sé verið að segja sömu hlutina, því sem rækilega hefur verið komið á framfæri af hálfu stjórnarflokkanna í 3. umræðu. Við sitjum hér og við hlýðum á, við meðtökum. Hér gengur dagskrá bærilega, mætti ganga hraðar fyrir sig. En ég tek undir það sem hv. þm. Kristján Þórður Snæbjarnarson sagði: Við berum öll ábyrgð. (Forseti hringir.) Við skulum taka ábyrgðina sem okkur er falin alvarlega og þau völd sem okkur eru falin.