um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Hv. þingmenn geta alveg komið hingað upp og verið fullkomlega miður sín fyrir hönd virðulegs forseta en þótt það liggi fyrir metnaðarfull dagskrá fyrir vikuna þá er það nú svo að lengd reglulegs þingfundar er bundin í lög og okkur er eflaust engin vorkunn að sú lengd sé ákveðin til klukkan átta á kvöldin og til miðnættis á þriðjudögum. En ég hygg, án þess að reyna um of að túlka orð annarra hv. þingmanna, að gagnrýni á stjórn þingsins varði það að sífellt sé farið fram yfir það sem segir skýrt í lögum um lengd þingfundar.