157. löggjafarþing — 85. fundur,  18. mars 2026.

um atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar.

[19:14]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf):

Frú forseti. Takk fyrir. Hér höldum við bara áfram í þessari stöðu. Það kemur mér á óvart að hér kom upp hv. þm. Bergþór Ólason og lætur okkur vita af því að Miðflokkurinn hafi ákveðið á fundi klukkan eitt í dag að krefjast þess að fara fram á atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar. Þingflokksformenn ræða við þingmenn viðkomandi flokks í dag sem gátu ekkert sagt til um neitt og þetta var sagt í pontu áðan af hálfu þingmanna Miðflokksins. Ég bara velti fyrir mér hvers konar farsi er í gangi. Af hverju er ekki hægt að segja, ef það er verið að fara fram á atkvæðagreiðslu, að það sé verið að fara fram á atkvæðagreiðslu frekar en að láta að því liggja að það sé samkomulag um annað?